Eva Albrechtsen
30 júlí, 2003

Sumarlestur
Ég er búin með síðustu Harry Potter bókina.... mér fannst hún ekkert sérstaklega góð, alla vega ekki miðað við fyrr bækurnar. Þetta var áttunda bókin sem ég klára núna í sumar. Ég byrjaði um hvítasunnuhelgina að lesa Þjóð Bjarnarins mikla, og þar sem ég vissi að þetta var eingöngu fyrsta af mörgum bókum, ákvað ég að lesa þær allar. Ég fékk næstu bókina, Dalur hestanna, niðri á bókasafni, en þegar ég var búin að lesa hana, komst ég að þeirri niðurstöðu að það væri alveg ómögulegt að lesa þessar bækur á íslensku (líklegast vegna þess að ég las fyrstu bókina á dönsku). Þá vildi svo skemmtilega til að ég var að fara til Danmerkur og gat fengið afgangin af seríunni lánaða hjá Gry frænku minni. Ég þarf svo bara að skila henni í haust þegar ég fer í skírnina til Amalie.
..... hvað á ég að gera svo núna í ágúst?? � september byrjar svo stanslaus lestur í skólanum, og þá verður ekki mikill, ef einhver tími, til að lesa sér til skemmtunar....


::Eva:: |13:34|

-----------------------------

28 júlí, 2003

Glymur
� gær fór ég með Söndru frænku í göngu. Við keyrðum inn Hvalfjörðin...... það er orðið frekar langt síðan ég hef keyrt þann fjörð..... og ætluðum að freystast þess að skoða fossinn Glym. Það reyndist vera eitthvað erfiðara en við höfðum hugsað okkur, sérstaklega þar sem okkur tókst hvað eftir annað að tína steinunum sem búið var að lita gula og sem áttu að vísa leiðina. Okkur tókst oft og mörgum sinnum að tína stígnum sem við ætluðum að fylgja.... vorum farnar að halda að við hefðum lesið allt of mikið af Harry Potter. En eftir að hafa borðað okkur saddar af bláberjum og krækiberjum, skriðið í gegnum hellisgöng, farið yfir mjög undarlega, en vel nothæfa brú, gengið upp steinskriðu og labbað allt of langt upp á vitlaust fjall sáum við loksins fossinn, og þetta var alveg vel þess virði. Við byrjuðum líka í grenjandi rigningu, en þegar ferðinni okkar var lokið var komið þetta líka yndislega veður og við komnar á stuttermabol. Ég ætla að reyna að setja nokkrar myndir inn af ferðinni, en get engu lofað...... ég er nánast farin að gefast upp á því að ég nokkurn tíman eigi eftir geta sett myndirnar mínar inn á netið.


::Eva:: |16:12|

-----------------------------

08 júlí, 2003

halló... held að ég hafi ruglast


::Eva:: |22:19|

-----------------------------








Skiferie i Schweitz
Århus i februar
Dåb i Jelling
Stockholm
Week-end i Holte
Jólin og áramótin
Skíði á Akureyri
Bruxelle
Björgunaræfing
26.-29. oktober
Þingvellir
Á Spáni
Haustpartý
Albrechtsen Cup 2006
Dalvík
Lónsöræfin
Hvannadalshnjúkur
Rafting
Hornstrandir
Albrechtsen Cup 2005
Marokkó
Páskar/Påsken 2004
31.3-2.4
26.-28. marts
Proflokadjamm
Jolin/Julen 2003
Jolaparty FH
FH-party/ovissuferd
Bekkjarparty












Læknanemar
Einkabankinn
FH
Röntgen Dómus
Rikkes Kig Ind
Senda sms
Forvarnarstarfið
Altavista
Símaskráin
Blogger
Mogginn