Eva Albrechtsen
29 nóvember, 2003

Það fór alveg framhjá mér að síðasti þátturinn af ´Sex and the city´ hafi verið á fimmtudaginn fyrir viku. Ég kom heim úr vinnunni í mestu makindum og æltaði sko að hafa það gott og horfa á tvo þætti af Sex and the city.... en í staðin var Ali G (RÚV hefði ekki getað valið leiðinlegri þátt!). Ég er ekkert sérlega sátt við þetta....

Dagurinn í dag er búin að fara í karamellugerð..... og ég er búin að borða alveg heilmikið..... rosalega gott. Og eins ótrúlegt sem það megi virðast, þá tókst þetta bara hjá mér í fyrst tilraun!!!


::Eva:: |20:14|

-----------------------------

25 nóvember, 2003

Það er kominn snjór!!! Reyndar hefði verið alveg frábært ef hann hefði komið mánuði seinna (það byrjaði að snjóa í gær, 24.!!, en það snjóar bara meira þá). Nú vona ég bara að hann fari ekkert að fara, það er svo æðislegt að sjá jólaljósin í snjónum (og þau verða vonandi flest komin upp næstu helgi!!!). Annars er bílinn minn alls ekkert svo ánægður með snjóinn, eða kannski frekar frostið. Hurðarnar eru alltaf frosnar fastar á morgnanna og þetta blessaða sprey sem að ég fjárfesti í um daginn virkar bara alls ekki (veit einhver hvernig svona sprey virkar??? á það ekki bara að virka strax og maður spreyar því á lásinn??). Ég var að fara að sækja Hörpu í morgun, kl 6.30 og var alls ekki í stuði hvorki til að skafa bílinn og hvað þá að þurfa að klifra í gegnum skottið. Og ekki nóg með það, að þótt að ég væri búin að opna, þá neituðu hurðarnar frammí samt að opnast, þannig að ég þurfti að klifra úr aftursætinu og frammí. En sem betur fer er Harpa þolimóð manneskja og var ekkert orðin pirruð þótt að ég kom allt of seint í morgun OG þótt að hún þurfti að sitja afturí upp í Techno.
Þrátt fyrir þetta þras í mér er ég mjög sátt við snjóinn og ennþá sáttari við bílinn minn. Það er nefnilega ekkert mál að keyra bílinn þótt að það sé snjór og hálka á veginum.... þannig að fyrst að einu vandamálin mín með þennan bíl eru að hurðarnar festist stundum (en ég kemst samt inn í bílinn), þá er ég bara mjög sátt.


::Eva:: |16:30|

-----------------------------

23 nóvember, 2003

smá leiðbeiningar......
... úff... ég er enn og aftur að reyna að breyta aðeins til á þessari blessaðri síðu minni og það gengur ekkert betur en áður. ´Stal´ mynd frá Bryndísi (vona að það hafi verið í lagi), en það tókst ekki betur en svo að maður þarf alltaf að refresha síðunni til að sjá hvað ég gerði, því að fyrst þegar maður fer inn á hana, þá sést ´headerinn´bara sem ruglmynd...hmmm.... það þarf aðeins að spá betur í þessu. En sem sagt, þeir sem lesa þessa blessuðu síðu mína, vinsamlega refreshið til að skoða hana í ´réttri mynd´.


::Eva:: |19:55|


Þessa dagana er frost annan hvern dag, alveg fáránlegt. Það var frost á fimmtudaginn og svo aftur á laugadaginn (og í bæði skiptin það mikið að hurðarnar á bílnum mínum frusu fast), en á föstudag og svo aftur í dag er grenjandi rigning. Það sem er svo slæmt við þetta "annað-hvern-dag-frost" er að ég keypti svona sprey til að þýða lásinn á bílnum eftir að ég ekki komst inn í bílinn á venjulegan hátt á fimmtudagsmorguninn. En þegar að ég fór á fætur á föstudagsmorgunin rigndi auðvitað, þannig að ég þurfti ekki á þessu spreyi mínu að halda (og ég sem hafði munað að geyma spreyið ekki úti í bíl!!!). Ég fór svo auðvitað með spreyið á mér út í bíl á föstudagsmorgunin og gleymid því þar.... og komst því ekki inn í bílinn þegar að það frysti svo aftur í gær. En núna er ég búin að ná í spreyið því að það frystir örugglega aftur í nótt!


::Eva:: |13:15|

-----------------------------

19 nóvember, 2003

Netið hrundi hérna heima í gær, en komst reyndar aftur á í gærkvöldi (alveg ómögulegt að komast ekkert á netið..... maður neyðist bara til þess að læra!!!), en þá komst ég að því að þráðlausa tengingin í tölvunni minni var horfin.... ekki nógu gott. Þá var bara ekki annað að gera en að fikta aðeins meira í tölvunni og.... það tókst.... nú er ég aftur nettengt, inni í herbergi, uppi í rúmmi, inni á klósetti... bara þar sem að mér hentar.
Síminn okkar er reyndar búin að vera í einhverju rugli undanfarið. Stundum tekur hann bara á því að deyja, jafnvel í miðju samtali og oft er á tali hjá okkur, en það er mjög ólíklegt að það gerist þar sem að við erum víst með þrjár eða fjórar línur inn í húsið (reyndar bara með tvo síma, en það er aukaatriði). Við hringdum því í Símann og báðum þá að koma að laga þetta fyrir okkur. Það er alveg stórmerkilegt hvernig þetta fyrirtæki virkar..... fyrst kom maður til að skoða einhvern ´gráan kassa´ utan um ISDN tenginguna. Hann fór svo og sagðist ætla að koma aftur. Hann kom ekki aftur..... en daginn eftir sá ég karlmann fyrir utan húsið að mála á hellurnar á bílastæðinu. Ég opnaði hurðina og hann sagðist vera að merkja því að þeir þurftu að grafa til að komast að því sem var í ólagi hjá okkur. En þessi karl gat auðvitað ekki séð um það að grafa.... nei, til þess komu þrír karlar.... daginn eftir.... og tóku þeir hellurnar upp og grófu gat á bílastæðið. Síðan komu einhver karl að gera við það sem var í ólagi. Síðan bönkuðu þeir upp á hjá okkur til að segja mér að einhver mundi koma að setja hellurnar á sinn stað aftur (þeir gátu reyndar sett sandinn aftur ofan í gatið sem þeir höfðu grafið). Þar sem að þetta var á föstudaginn, þá vorum við auðvitað með gat úti á bílastæði um helgina, nema hvað að hann pabbi minn þolir ekki að horfa á hálfklárað verk þannig að hann fór bara út og setti hellurnar á sinn stað fyrir þessa gaura. Og núna eru tvær keilur úti á bílastæðinu okkar sem bíða eftir því að réttu starfsmenn Símanns komi að sækja þær!!!


::Eva:: |17:47|

-----------------------------

17 nóvember, 2003

Það er bara allt að gerast hjá mér.... búin að setja upp myndasíðu og einnig búin að setja mynd inn á bloggið!!! Þar sem að ég tými ekki að borga tæpar 70.000 kr fyrir námskeið í vefsíðugerð verð rann það upp fyrir með að ef ég ætla að breyta þessari síðu eitthvað þá verð ég bara að gera það sjálf. Þannig að ég fór að fikta .....með misgóðum árangri... tókst um helgina að downloada einhverri auglýsingu sem neitaði að fara af skjánum mínum.... EN mér tókst lað lokum, með fikti að losa mig við þessa tilteknu auglýsingu. Ef ég held svona áfram enda ég annaðhvort á því að rústa tölvunni minni eða þá bara að læra betur á þetta tæki (ég vona bara að ég verði ekki búin að rústa tölvunni þegar ég er búin að læra á hana)!!
Mamma kom heim frá Svíþjóð áðan, var að fylgja sjúklingi sem þurfti að fara í aðgerð þar. Hún var nú ekki betri en það að hún lagðist í rúmmið á hótelinu sínu, illt í bakinu, daginn áður en hún átti að fljúga heim með sjúklinginn!! Hún fór nefnilega út að hlaupa í Gautaborg og bakið hennar þoldi greinilega ekki hellurnar sem Svíarnir nota á gangstéttirnar sínar (þetta eru mjög litlar heller, ca 10x10, finnast líka oft á götum í DK). Sem betur fer varð hún betri í nótt og náði að fljúga með sjúklinginn fyrst til Kaupmannahafnar og síðan til Keflavíkur þar sem að sjúkrabíll beið eftir þeim úti á flugbrautinni og keyrði þau í bæinn (og skutluðu reyndar mömmu fyrst heim með töskuna hennar.... alla leiðina heim.... sem vakti þó nokkra athygli þar sem að gatan okkar er frekar lítil (og sjúkrabíll frekar áberandi fyrirbæri) og sérstaklega þar sem mamma kom bara hlaupandi út úr sjúkrabílnum með ferðatösku!!)


::Eva:: |17:48|

-----------------------------

16 nóvember, 2003

Afskaplega er þetta búið að vera róleg helgi hjá mér.... seint að sofa (eftir að hafa bara sitið fyrir framan sjónvarpið) og þar með líka seint á fætur....
Gerði samt smá í morgun.... gekk alveg fram af sjálfri mér og fór í sund þrátt fyrir nýlegan fyrirlestur í sýklafræði þar sem að okkur var sýnt fjölda og fjölbreytileika sveppa í búningsklefum kvenna annars vegar og hins vega í búningsklefum karla í sundlaug í Reykjavík...... frekar ógeðslegt, og ég hefði örugglega ekki farið ef að ég væri karlmaður. Reyndar er þetta fag eitt það ógeðslegasta sem ég hef upplifað í Læknadeildinni. Mér finnst allt í lagi að sjá blóð og það sem tengist því (ætli ég þurfi ekki að taka það fram núna að ég hef mjög takmarkaða reynslu af spítalastarfinu), en snýkjudýrin sem okkur var sýnt í verklegri sýklafræði og lýsingar á "ferðalögum" þeirra var virkilega viðbjóðslegt. Að ímynda sér langa orma sem geta lifað góðu lífi í meltingafærum manna og ferðast upp og niður þá, er einn hlutur, en að sjá þessi kvikndi og ímynda sér fyrrgreinda hluti er bara eitthvað sem að ég hefði betur viljað sleppa.


::Eva:: |16:29|

-----------------------------

13 nóvember, 2003

Ný myndasíða komin í gang.... á þessari fæ ég aðeins meira pláss til að setja upp myndir, þannig að ég ákvað að nota þessa aðeins (3 MB á msn-síðunni, en 200 MB á þessari... munar aðeins!!!).


::Eva:: |22:16|

-----------------------------

11 nóvember, 2003

Þetta hljómar líklega mjög undarlegt en þar virðist ætla verða erfitt fyrir mig að kúpla mig út úr próflestrinum. Lota nr 2 er byrjuð í skólanum, og ég auðvitað eins og ég er, reyni að vera samviskusöm að læra þar sem ég er bara í fyrirlestrum fyrir hádegi hérna fyrstu vikuna og ég fæ bara þetta rosalega samviskubit ef að ég ekki sit við skrifborðið mitt meðan ég er hérna heima...... fáránlegt!! Annars byrjar þessi lota bara ágætlega, við erum ´bara´í tveimur fögum, meinafræði og lyfjafræði, en hvort fag um sig er 9 einingar, þannig að við erum að taka mun fleiri einingar núna en í síðustu lotu, þar sem við tókum 11 einingar í fjórum fögum (dreifing eininganna er að mínu mati stundum frekar frjálsleg og endurspeglar alls ekki vinnuna sem liggur á bakvið hverja einingu, td. fengum við jafnmargar einingar fyrir ónæmisfræðina og erfðalæknisfræðina, en vinnan í ónæmisfræðinni var 70x meiri).
Fór í bekkjarpartý á föstudaginn, til Eyjólfs, en hann hélt upp á próflok og afmælið sitt. Ég er búin að setja nokkrar myndir inn (!!), en ég held að ég verði að fara að verða duglegri að taka myndir eða þá að hætta að ritskoða myndirnar mínar, því ég enda alltaf á því að setja mjög fáar myndir inn!! Eftir partýið fórum við niður í bæ á Hverfisbarinn, en vorum ekki lengur þar því að einhver stelpa ákvað að hella bjórglasi yfir Hörpu (hún sagði að þetta hefði verið alveg meðvitað af stelpunni..... ég ætla ekki að segja neitt um það.... ég varð bara allt í einu blaut á annarri hendinni og leit þá á Hörpu og þá var hún rennandi blaut), þannig að við drifum okkur bara heim. Laugadagurinn fór svo í ísgerð hjá mér.... þar sem mér tókst að borða helminginn af ísdeiginu (hvað kallar maður annars ófrystan ís?!?) áður en ég fór í vinnuna með illt í maganum! � sunnudaginn elduðum við Elna æðislegan kvöldmat og svo borðuðum við það sem eftir var af ísinum yfir Nikolaj og Julie


::Eva:: |22:29|

-----------------------------

08 nóvember, 2003

Loksins, loksins!! Mér tókst að setja myndirnar mínar inn á einhverja msn-síðu, en hún á örugglega eftir að fyllast fljótt. Ég þarf því að vera með myndirnar í frekar lélegum gæðum, en ég vona að mér takist einhverntíman að koma upp myndasíðu á háskólaheimasvæðinu mínu, þannig að það sé þá hægt að hafa myndirnar í þokkalegum gæðum...... EEEN nú geta alla vega fleiri en ég skoðað myndirnar.... loksins!!


::Eva:: |14:50|

-----------------------------

06 nóvember, 2003

hvort þessara er verst; að mamma og pabbi hafi gleymt silfurbrúðkaupsafmælinu sínu eða að ÉG hafi gleymt því.
Það treysta nefnilega allir hérna á það að ég muni alla afmælisdaga, sem og ég geri oftast..... ég bý yfir einhverjum óþolandi hæfileika að muna ALLA afmælisdaga sem ég heyri um, sama hvort það eru vinir eða óvinir mínir.... ekki það að ég eigi svo marga óvini. Eeeen kannski er ég að verða kölkuð því að nú síðasta árið hef ég afrekað að gleyma tveimur stórafmælum, þessu silfurbrúðkaupsafmæli og svo gleymdi ég 80 ára afmæli afa míns í fyrra. Samt hef ég afsakanir í bæði skiptin.... próf. Brúðkaupsdagur mömmu og pabba er 28. óktóber og það var þremur dögum fyrir ónæmisfræðiprófið mitt og afmælið hans afa í fyrra var daginn fyrir heilaprófið mitt..... eru þetta ekki löglega afsakanir???


::Eva:: |15:35|

-----------------------------

05 nóvember, 2003

Ég fór í bodypump tíma í dag og eftir tímann komu nokkrar stelpur til okkar Hörpu og voru að dáðst að því hversu massaðar við erum!! Nokkuð gaman að fá svona comment. Annars ákváðum við Harpa að þyngja lóðin okkar þar sem prófin eru búin og maður er gjörsamlega að deyja á tímabilum. En mér finnst það merkilegt hversu fáar harðsperrur ég fæ eftir þessar þyngingar mínar... ég er bara þreytt og hendurnar eru eins og blý.
Núna þegar ég er ekkert að læra eyði ég bara tímum saman á netinu... ég væri orðin gjaldþrota ef að ég þyrfti að borga fyrir þann tíma sem ég hangi á netinu... en það þarf ég sem betur fer ekki. Hef reyndar lika verið að raða myndum inn í albúm og svo fór ég í IKEA í dag og keypti fullt af römmum og er núna að setja myndir inn í ramma og ætla bara að hengja fullt upp á vegginn, þe. ef pabbi leyfir mér að negla fullt af nöglum í vegginn (held reyndar að það þurfi smá sannfæringu, en mér hefur nú tekist að sannfæra hann áður, þannig að það ætti nú ekki að vera allt of stórt vandamál).
Svo langar mig að taka það fram að við Elna spiluðum 500 áðan (held að það kallist rommý á íslensku) og ég vann!!!! Svona bara af því að hún var að monta sig yfir því að hafa unnið pabba í gær..... ég sko rústaði henni!!


::Eva:: |23:12|

-----------------------------

03 nóvember, 2003

Hópverkefnis maraþon helgarinnar er búið.....fyrirlesturinn í erfðalæknisfræði var fluttur áðan. Ég er því formlega búin með haustönnina á þriðja ári í læknisfræði (þe ef ég fæ engar falleinkunnir)!!!! og komin í vikufrí frá lærdómnum.... yndislegt!


::Eva:: |17:36|

-----------------------------








Skiferie i Schweitz
Århus i februar
Dåb i Jelling
Stockholm
Week-end i Holte
Jólin og áramótin
Skíði á Akureyri
Bruxelle
Björgunaræfing
26.-29. oktober
Þingvellir
Á Spáni
Haustpartý
Albrechtsen Cup 2006
Dalvík
Lónsöræfin
Hvannadalshnjúkur
Rafting
Hornstrandir
Albrechtsen Cup 2005
Marokkó
Páskar/Påsken 2004
31.3-2.4
26.-28. marts
Proflokadjamm
Jolin/Julen 2003
Jolaparty FH
FH-party/ovissuferd
Bekkjarparty












Læknanemar
Einkabankinn
FH
Röntgen Dómus
Rikkes Kig Ind
Senda sms
Forvarnarstarfið
Altavista
Símaskráin
Blogger
Mogginn